Þyrla sótti brennt barn

Þyrla LHG TF.
Þyrla LHG TF. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti í dag fjögurra mánaða gamalt barn sem hafði brennst á heitu vatni í Þjórsárdal. Sjúkrabíll, lögregla og þyrla fóru á vettvang og var barnið flutt með þyrlunni til aðhlynningar á Landspítalann í Fossvogi.

Lögreglan á Suðurlandi hefur ekki fleiri upplýsingar um málið að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert