Forseti Alþingis, Einar K. Guðfinnsson, gleymdi næstum liðnum óundirbúnar fyrirspurnir á þingfundi í dag en áttaði sig á því þegar þingmenn kölluðu úr sal og bentu honum á mistökin. Áður höfðu farið fram langar umræður um fundarastjórn forseta.
Einar brást við með orðunum: „Fyrirgefið, það mátti reyna.“ Uppskar hann hlátur þingmanna. Bætti Einar við að hann hafi verið að reyna að taka af skarið en í umræðunni um fundarstjórn forseta hafði hann verið gagnrýndur fyrir að taka ekki af skarið varðandi þau mál sem til stæði að klára fyrir kosningar svo starfsáætlun þingsins héldi.