Club 71 verðlaunaður á Akranesi

Club 71 hlaut Menningarverðlaun Akraness 2016.
Club 71 hlaut Menningarverðlaun Akraness 2016. Ljósmynd/Aðsend

Menningarverðlaun Akraness 2016 voru veitt fyrr í dag við setningu lista- og menningarhátíðarinnar Vökudagar. Verðlaunin í ár hlaut Club 71 sem er félagsskapur Skagamanna sem fæddust 1971.

Club 71 hefur staðið fyrir fjölda viðburða á Akranesi á undanförnum árum þar sem helst ber að nefna árlegt þorrablót Skagamanna sem meðlimir undirbúa og framkvæma í sjálfboðavinnu og fjölsóttan brekkusöng á Írskum dögum. Ágóði þorrablótsins hefur runnið til íþrótta- og menningarstarfs á Akranesi. Þorrablótin hafa vaxið ár frá ári og eru afar vinsæl og vel sótt, að því er kemur fram í tilkynningu.

Í máli Ingþórs Bergmanns Þórhallssonar, formanns menningar- og safnanefndar, kom fram að  starf Club 71 hefði sett jákvæðan svip á bæjarbraginn og auðgað menningarlíf bæjarbúa. Þorrablót Club 71 sé orðinn fastur hluti af menningarstarfsemi á Akranesi. Það var Sævar Freyr Þráinsson sem veitti verðlaunagripnum móttöku fyrir hönd hópsins.

Ljósmynd/Aðsend

Vökudagar haldnir frá árinu 2002

Regína Ásvaldsdóttir, bæjarstjóri Akraness, setti Vökudaga formlega í dag en hátíðin hefur verið haldin árlega frá árinu 2002.

Hátíðin var sett í Safnaskála Byggðasafnsins í Görðum en þar voru opnaðar þrjár sýningar, „Hver vegur að heiman er vegur heim,“ sýning Gyðu L. Jónsdóttur Wells, „Skart við skóna“, sýning Dýrfinnu Torfadóttur og sýningin „Bannárin, brennivínið og bæjarbytturnar“ í umsjón þeirra Gerðar Jóhannsdóttur héraðsskjalavarðar og Nönnu Þóru Áskelsdóttur, deildarstjóra ljósmyndasafnsins.

Nánari upplýsingar um dagskrá Vökudaga og viðburði má finna á vefsíðu Akranesbæjar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert