Frystir fyrir norðan í nótt

Frost á Akureyri.
Frost á Akureyri. mbl.is/Skapti

Veðurspá næsta sólarhringinn gerir ráð fyrir frosti í innsveitum fyrir norðan og austan í nótt. Á morgun nálgast lægðardrag sunnan úr hafi og hvessir þá af austri og fer að rigna sunnan og vestan til samkvæmt spá Veðurstofu Íslands.

Reikna má enn fremur með snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum og í Mýrdal síðdegis á morgun. Þurrt verður norðaustanlands megnið af morgundeginum, en mögulega lítils háttar væta um kvöldið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert