Ekki er talið líklegt að Íslendingar séu á því svæði þar sem snjóflóð féll á fjallahótel í Gran Sasso-fjöllunum í Abruzzo-hérað á Ítalíu í nótt, samkvæmt upplýsingum frá utanríkisráðuneytinu. Engar upplýsingar um dvöl Íslendinga þar hafa borist ráðuneytinu.
Á hótelinu voru um 30 manns og að minnsta kosti tveir komust lífs af. Ekki hefur fengist staðfest hversu margir létust.
Snjóflóðið féll eftir jarðskjálfta sem voru skammt frá í gær. Björgunarstarf hefur verið erfitt á svæðinu meðal annars vegna óveðurs.
Frétt mbl.is: Fjölmargir látnir í snjóflóði á Ítalíu