Biðja fólk að aka ekki um Heiðmörk

„Ökumenn eru vinsamlegast beðnir um að aka ekki vegi á …
„Ökumenn eru vinsamlegast beðnir um að aka ekki vegi á vatnsverndarsvæðinu í Heiðmörk. Vegir eru varasamir og hætta á slysum,“ segir í tilkynningunni. mbl.is/Golli

Framkvæmdastjórn um vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim tilmælum til ökumanna að fara ekki akandi inn á vatnsverndarsvæðið í Heiðmörk í því færi sem ríkir á svæðinu um þessar mundir.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg kemur fram að þar sem engin vetrarþjónusta er á vegum í Heiðmörk er ekki fært fyrir umferð bifreiða. „Vegir eru varasamir og hætta á slysum.“

„Svæðið er útivistarsvæði fyrir gangandi vegfarendur og við núverandi aðstæður fyrir fólk á gönguskíðum. Hvers konar akstur innan svæðisins getur ógnað öryggi vatnsverndar. Jarðlög í Heiðmörk eru gljúp vegna hrauns, stutt er niður á grunnvatn og því er svæðið viðkvæmt m.t.t. þess að mengun berist í grunnvatnið og spilli neysluvatninu. Því er mikilvægt að allir umgangist svæðið af virðingu og fylgi þeim reglum sem um það gilda.“

Tilmælin koma frá framkvæmdastjórnum heilbrigðiseftirlitssvæða á höfuðborgarsvæðinu; Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis og Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert