Leita að mannlausum gúmmíbát

Björgunarskip - mynd úr safni.
Björgunarskip - mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Björgunarsveitin í Grindavík hefur verið kölluð út til þess að leita að mannlausum gúmmíbát sem fór fyrir borð á skipi skammt fyrir utan Reykjanes.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni er nauðsynlegt að finna bátinn þar sem neyðarsendir hans er í gangi en engin hætta er á ferðinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert