Haukur skipaður ráðuneytisstjóri

Haukur Guðmundsson.
Haukur Guðmundsson. Ljósmynd/Dómsmálaráðuneytið

Haukur Guðmundsson hefur verið skipaður ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins og tekur hann við embættinu 1. júní. Embættið var auglýst 10. apríl og voru umsækjendur tólf en þrír drógu umsóknir sínar til baka. Þriggja manna hæfisnefnd fór yfir umsóknirnar og var Haukur á meðal þeirra umsækjenda sem metnir voru hæfir.

Haukur lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands 1996 og aukaeiningum í hagfræði og stjórnmálafræði. Hann hefur réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi og hefur einnig lokið fjölda námskeiða á sviði lögfræði segir í fréttatilkynningu. Haukur hefur verið sjálfstætt starfandi lögmaður frá árinu 2012 og var settur forstjóri Samkeppniseftirlitsins í rúmt ár, frá 2014 til 2015. Þá hefur hann gegnt formennsku í gjafsóknarnefnd frá 2015 og úrskurðarnefnd um viðskipti við fjármálafyrirtæki frá 2012.

„Haukur hefur einnig sinnt verkefnum fyrir innanríkisráðuneytið um einstök mál tengd stofnanaskipulagi og samstarfi stofnana á sviði útlendingamála og verksviði Björgunarmiðstöðvarinnar í Skógarhlíð. Þá starfaði Haukur einnig um árabil hjá dómsmálaráðuneytinu, fyrst árin 1998 til 2001 og aftur 2004 til 2010, að undanskildu einu ári, þegar hann var settur forstjóri Útlendingastofnunar. Hjá dómsmálaráðuneytinu var Haukur m.a. skrifstofustjóri einkamála og borgaraskrifstofu og sinnti þar m.a. kærumálum, stefnumótun og stjórnsýslu á sviði persónuréttar og útlendingamála.“

Enn fremur segir að Haukur hafi einnig gegnt starfi fulltrúa hjá sýslumanninum í Hafnarfirði um tveggja ára skeið og verið aðstoðarmaður dómara við Hæstarétt Íslands. Þá hafi hann verið sendifulltrúi hjá sendiráði Íslands í Brussel árin 2001–2004.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert