Edda útgáfa í samstarfi við SAFT, vakningarátak um örugga og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun barna og unglinga á Íslandi, gaf á dögunum út Andrésar Andar blað um samskipti á netinu en þar er m.a. farið yfir öryggisógnir, samfélagsmiðla og neteinelti svo dæmi séu tekin. Blaðinu var dreift með Morgunblaðinu í gær og verður dreift til allra grunnskóla landsins í haust.
María Brynhildur Johnson, sölu- og markaðsstjóri Eddu útgáfu, segir efnið hafa verið samið í samstarfi við útgefendur Andrésar Andar á Norðurlöndunum og hefur blaðið verið gefið út á nokkrum norrænum tungumálum. Hún segir tækifæri felast í því að gera fræðsluna skemmtilega.
„Og hver er betri en Andrés í því að fræða krakkana um svona mikilvægt málefni,“ segir hún og bætir við að viðtökurnar hafi verið mjög góðar þegar blaðinu var dreift með Morgunblaðinu í gær.
SAFT kom m.a. að þýðingu á blaðinu og munu samtökin einnig annast dreifingu þess. Útgáfan er kostuð af Árvakri, móðurfélagi Eddu útgáfu, en mbl.is er einnig í eigu Árvakurs.
María Brynhildur segir að hægt sé að nálgast blaðið hjá Eddu útgáfu sem er staðsett í Hádegismóum, en eins og segir að ofan verður blaðinu dreift í alla grunnskóla landsins í haust.