Bíl ekið út í sjó

Bifreiðin í sjónum sunnan Leiruvegarins.
Bifreiðin í sjónum sunnan Leiruvegarins. mbl.is

Fólksbifreið var ekið út af Leiruveginum við Akureyri í morgun og lenti hálfur á kaf í sjónum norðan flugvallarins. Ökumaðurinn komst út úr bílnum, gekk í land og varð ekki meint af. Ástæða óhappsins er sú að ökumaðurinn sofnaði undir stýri.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Akureyri er bíllinn mikið skemmdur en hann var dreginn upp úr sjónum með dráttarbíl. Ökumaðurinn var færður á sjúkrahús til skoðunar en varð ekki meint af volkinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert