Sigurvegari góðgerðarhöggs á árlegu fyrirtækjagolfmóti Securitas, Örn Sveinsson, ánafnaði barnaspítala Hringsins upphæðinni, 80.000 krónur. Samkvæmt fréttatilkynningu Securitas vann Örn, sem er frá Saga Film, einnig góðgerðarhöggið á síðasta ári og lét upphæðina sem þá safnaðist, 70.000 krónur, einnig renna til barnaspítalans.