Árekstur á Miklubraut

Þrír sjúkrabílar og slökkvilið mættu á vettvang vegna áreksturs við …
Þrír sjúkrabílar og slökkvilið mættu á vettvang vegna áreksturs við Miklubraut. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Grensásvegar. Þrír voru fluttir með sjúkrabíl vegna minni háttar meiðsla eftir áreksturinn samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. 

Atvikið var ekki alvarlegt en smá leki varð úr bílunum við áreksturinn og er slökkviliðið búið að hreinsa götuna. Engin alvarleg slys urðu á fólki og umferð gengur nú sinn vanagang.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert