María Rut Reynisdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur úr hópi 35 umsækjenda. Hlutverk Maríu Rutar verður meðal annars að móta og ýta úr vör aðgerðum í samræmi við tillögur starfshóps um Tónlistarborgina Reykjavík og skapa hagstæð skilyrði fyrir tónlistarstarfsemi í borginni. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
María Rut hefur undanfarin ár verið umboðsmaður tónlistarfólks, þar á meðal Ásgeirs Trausta, og sinnt umfangsmiklum verkefnum í því starfi á Íslandi og erlendis. Hún var einnig framkvæmdastjóri Íslensku tónlistarverðlaunanna í nokkur ár og tók þátt í því að byggja upp frumkvöðlafyrirtækið og tónlistarveituna Gogyoko.com.
María hefur verið dagskrárstjóri tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves, ráðstefnustjóri You Are In Control, skipulagt Ljósanætur í Reykjanesbæ og kennt verkefnastjórnun hjá Listaháskóla Íslands. Í gegnum árin hefur hún auk þess skipulagt og stýrt ýmsum öðrum verkefnum og viðburðum.
María Rut lærði skapandi verkefna- og viðskiptastjórnun í Kaos Pilot-skólanum í Árósum og er auk þess með BA-gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands. Hún hefur einnig lokið netnámskeiði Berklee-tónlistarskólans í markaðssetningu tónlistar á netinu.
Tónlistarborgin Reykjavík er nýtt þróunarverkefni á vegum Reykjavíkurborgar. Verkefnið heyrir undir menningar- og ferðamálasvið Reykjavíkur en starfsstöðin verður við Hlemm, í sama húsnæði og Útón, útflutningsskrifstofa Íslenskrar tónlistar.