Umferðartafir eru á Sæbraut en frá því klukkan 21.00 hefur verið unnið að kvikmyndatöku þar. Tafir verða á umferð fram eftir nóttu.
Unnið verður að kvikmyndatöku á kaflanum frá Klettagörðum að Höfða til vesturs. Lögreglan verður á staðnum og stýrir umferð. Vegfarendur eru beðnir um að sýna þolinmæði og tillitssemi.