Öll undir sama þaki

Iðnaðarmenn að störfum.
Iðnaðarmenn að störfum. mbl.is/Golli

Samiðn og iðnfélögin Byggiðn - Félag byggingamanna og Félag iðn- og tæknigreina hafa undirritað kaupsamning við Birtu lífeyrissjóð um kaup þessara félaga á eignarhlut lífeyrissjóðsins í Stórhöfða 31.

Fyrir eru í húsinu rafiðnaðarmenn, iðnaðarmenn í matvælaiðnaði og bókagerðarmenn, þ.e.a.s. Rafiðnaðarsamband Íslands, MATVÍS og Grafía.

Þegar flutningarnir verða um garð gengnir munu öll iðnaðarmannafélögin nema Félag vélstjóra og málmtæknimanna vera undir sama þaki og með samstarf um þjónustu, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert