Lögreglan stöðvaði bifreið við Langholtsveg um hálftvö í nótt og fann lögreglumaður sterka fíkniefnalykt koma úr bifreiðinni. Ökumaðurinn afhenti þá lögreglunni fíkniefni sem hann var með á sér.
Um svipað leyti handtók lögreglan mann í annarlegu ástandi við Vatnsmýrarveg. Maðurinn er grunaður um eignaspjöll, brot á lögreglusamþykkt og ofbeldi gagnvart opinberum starfsmanni. Maðurinn er vistaður fyrir rannsókn máls í fangageymslu lögreglu.