Hvalfjarðargöng verða lokuð fyrir alla umferð í nótt og til sex í fyrramálið vegna viðhalds og hreingerningar, að því er fram kemur á heimasíðu Vegagerðarinnar.
„Það er árlegur viðburður í rekstri ganganna að loka þeim í nokkrar nætur að vori og hausti af þessu tilefni. Lokun nú er því hefðbundin ráðstöfun og beðist er velvirðingar á óþægindum sem hún kann að valda,“ segir í tilkynningu á heimasíðunni.