Alltaf upplýst um mál þjálfarans

Í yfirlýsingu SSÍ segir að mikilvægt sé fyrir sundhreyfingunni á …
Í yfirlýsingu SSÍ segir að mikilvægt sé fyrir sundhreyfingunni á Íslandi að traust ríki milli iðkennda, þjálfara, félaga og sambands. Mynd úr safni. mbl.is/Þorvaldur Örn Kristmundsson

Sundsamband Íslands (SSÍ)hefur ávalt upplýst um mál Hildar Erlu Gísladóttur, sem segir sögu sína af kynferðislegri misnotkun sundþjálfara í Fréttablaðinu í dag, frá því að það kom upp þegar fyrirspurnir hafa borist um sundþjálfarann. Þetta segir í yfirlýsingu sem SSÍ sendi frá sér nú síðdegis.

Er  Hildi Erlu þar þakkað fyrir að segja sögu sína, enda lýsi það bæði kjarki og áræði og hvetji aðra til að  „uppræta það mein sem kynbundið ofbeldi er“. 

„Sundsamband Íslands brást við þegar mál tengd viðkomandi sundþjálfara kom fyrst upp á sínum tíma, með því að upplýsa félagið, sem var hans vinnuveitandi, um málið.  Í ljósi sögunnar má segja að Sundsamband Íslands hefði getað brugðist við með meira afgerandi hætti. Sú saga er til að læra af,“ segir í yfirlýsingunni. 

Þegar mál Hildar Erlu hafi kom upp á yfirborðið árið 2008, þá hafi Sundfélag Hafnarfjarðar sagt að þjálfaranum upp störfum samstundis og hafi jafnframt stutt hana í því ferli sem þá fór í gang. „Jafnframt upplýsti félagið SSÍ um málin og í framhaldi af því sendi SSÍ tilkynningu um hann til LEN, Evrópska sundsambandsins og FINA, Alþjóðasundsambandsins. Í þau skipti sem haft hefur verið samband við SSÍ með fyrirspurnir um þjálfarann, hefur alltaf verið upplýst um þetta tiltekna mál og viðkomandi bent á að ræða beint við Sundfélag Hafnarfjarðar til að fá upplýsingar frá fyrstu hendi.“ 

Mikilvægt sé fyrir sundhreyfingunni á Íslandi að traust ríki milli iðkennda, þjálfara, félaga og sambands. Öll ofbeldismál, hverju nafni sem þau nefnast, séu brot á því trausti.  Mikilvægt sé að bregðast við án tafar og herða á þeirri vinnu sem þegar er farin í gang til að koma í veg fyrir að slík brot eigi sér stað.

„Stjórn Sundsambands Íslands samþykkti á fundi sínum þann 31. ágúst síðastliðinn að setja í gang fræðslu fyrir félög og sundfólk, um einelti, ofbeldi af öllu tagi og geðheilsu. Markmiðið er að sundfólk og félög verði upplýst um hvað er eðlilegt og hvað ekki, hvaða viðbrögð eru viðeigandi og svo framvegis. Efni frá ÍSÍ verður notað og fengnir utanaðkomandi aðilar og fagfólk til verka.

Sundsamband Íslands hvetur þá sem telja að á sér hafi verið brotið innan hreyfingarinnar að hafa samband við undirritaðan eða skrifstofu SSÍ. SSÍ mun greiða leið þeirra að viðeigandi þjónustu fagaðila.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert