Vara við hviðum undir Eyjafjöllum

Veðurútlit á hádegi í dag.
Veðurútlit á hádegi í dag.

Strekkings austlæg átt og fremur vætusamt verður suðaustan til á landinu fram undir hádegi, en mun úrkomuminna annars staðar. Varar Veðurstofan við því að búast megi við snörpum vindhviðum undir Eyjafjöllum og í Mýrdal fram eftir morgni.

Það lægir síðan og dregur úr vætu um og eftir hádegi, fyrst um landið sunnanvert.

Útlit er fyrir norðaustankalda á morgun og dálitla rigningu eða súld norðan og austan til, en yfirleitt þurrt um landið suðvestanvert. Milt verður í veðri og hiti víða á bilinu 3 til 10 stig, hlýjast syðst.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert