Hætt kominn vegna fíkniefnaleka

Maðurinn var í kjölfarið handtekinn af lögreglunni á Suðurnesjum og …
Maðurinn var í kjölfarið handtekinn af lögreglunni á Suðurnesjum og var fluttur á lögreglustöð. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Íslenskur karlmaður var nýverið hætt kominn þegar að pakkning með fíkniefnum sem hann hafði komið fyrir innvortis fór að leka. „Maðurinn var fluttur með hraði á Landspítala þar sem gerð var á honum aðgerð sem án vafa hefur bjargað lífi hans,“ að því er segir í fréttatilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Maðurinn, sem er á þrítugsaldri, kom með flugi frá Manchester þann 31. október síðastliðinn. Var hann stöðvaður af tollvörðum í  Flugstöð Leifs Eiríkssonar vegna gruns um fíkniefnasmygl.

Hann var í kjölfarið handtekinn af lögreglunni á Suðurnesjum og var hann fluttur á lögreglustöð. Maðurinn reyndist vera með 41 pakkningu af fíkniefnum innvortis, sem innihéldu 300 grömm af kókaíni og 60 grömm af fíkniefninu ecstasy.

Lögregla telur málið upplýst.

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-500, en í hann má hringja  til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert