Fossadagatalið 2018 og Fossabæklingur með ljósmyndum af Gullfossum Stranda hefur rokið út í dag, á fyrsta söludegi. Dagatalið er nú uppselt hjá útgefanda en búið er að panta annað upplag, 1.000 eintök.
Tómas Guðbjartsson hjartaskurðlæknir og Ólafur Már Björnsson augnlæknir tóku myndirnar á dagatalinu og í bæklingnum, en þar er finna myndir af þeim 30 fossum sem verða undir ef Hvalárvirkjun verður að veruleika.
Tómas greindi frá því á Facebook-síðu sinni að allar hillur hjá þeim væru nú tómar en að nokkur eintök væru til á sölustöðum dagatalsins; Melabúðinni, Lyfjaveri, Skrifstofu Ferðafélags Ísland, Everest og Fjallakofanum.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra tók við fyrsta eintakinu úr hendi þeirra Tómasar og Ólafs í gær og í fréttatilkynningu kom fram að langflestir fossanna hefðu, áður en þeir settu dagatalið á Facebook í september, ekki sést á mynd.
Framtakið borga þeir úr eigin vasa og tóku fram að engin samtök eða stjórnmálaflokkar kæmu að útgáfunni. Ágóði af útgáfunni rennur til Rjúkanda, samtaka um verndun náttúru og menningarverðmæta í Árneshreppi á Ströndum.