Stúfur tjáir sig á Twitter

Stúfur afhenti stílabækur í ýmsum löndum frá Íslendingum sem gáfu …
Stúfur afhenti stílabækur í ýmsum löndum frá Íslendingum sem gáfu námsgögn sem sannar gjafir fyrir jólin í fyrra. Teikning/Brian Pilkington

Enn fjölgar í hópi þeirra jólasveina sem ekki hyggjast fara að tillögum jólagjafaráðs. Seint í gærkvöldi greindi Stúfur frá því á samskiptamiðlinum Twitter að hann hygðist fara á svig við tillögur ráðsins. 

Tíst Stúfs hljóðar svo:

Af hverju ekki að gefa að gefa námsgögn í skóinn? Sniðugt, gagnlegt, eykur lífsgæði og stuðlar að jafnrétti kynjanna! #menntermáttur #jafnrétti #sannargjafir #unicef #margurerknár

Vísar Stúfur hér til námsgagnapakka sem hægt er að kaupa í vefverslun UNICEF. Jólagjafaráð liggur undir ámæli þessa dagana, en í því sitja þrír jólasveinar: Kertasníkir, Gluggagægir og Ketkrókur. Hjá jólagjafaráði fengust þær upplýsingar að yfirlýsingar væri að vænta vegna málsins.

Það getur verið vandasamt að ákveða hvað skuli gefa í skóinn. Sannar gjafir eru frábærar í skóinn, undir tréð eða við annað fallegt tilefni – hægt er að kaupa gjöf sem bjargar lífi barna hér.

Mbl.is heldur samstarfi sínu við jólasveinana áfram og mun birta nýtt myndband í jólatagatali UNICEF á hverjum degi fram að jólum. UNICEF, Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, berst fyrir réttindum allra barna á heimsvísu.

Búið er að setja upp bráðabirgðaskóla í flóttamannabúðum Rohingja.
Búið er að setja upp bráðabirgðaskóla í flóttamannabúðum Rohingja. Ljósmynd/UNICEF
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert