Þyrlan sótti slasaðan vélsleðamann

TF - GNA, þyrla Gæslunnar.
TF - GNA, þyrla Gæslunnar. mbl.is/Árni Sæberg

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til um miðjan daginn en sækja þurfti slasaðan vélsleðamann skammt suður af Klukkuskarði. 

Samkvæmt upplýsingum af Facebook-síðu lögreglunnar á Suðurlandi var maðurinn þar á ferð ásamt félögum sínum og var fluttur á sjúkrahús í Reykjavík en talið er að hann sé fótbrotinn. 

Björgunarsveitir Landsbjargar voru sendar áleiðis til öryggis ef þyrlan gæti ekki athafnað sig en til þess kom hinsvegar ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert