Skrifstofur Veitna við Dalbraut á Akranesi verða rýmdar vegna myglusvepps. Verður starfsemin flutt í skrifstofugáma. Skessuhorn greinir frá. Í samtali við miðilinn segir Inga Dóra Hrólfsdóttir, framkvæmdastjóri Veitna, að grunsemdir um myglu hafi vaknað í haust og hafi starfsmenn þegar í stað verið látnir vita.
Gámarnir, sem skrifstofurnar verða fluttar í eru útbúnir sérstökum skrifstofurýmum og kaffistofum. Byrjað verður að setja þá saman í byrjun næstu viku, en að sögn Ingu Dóru hafa næstu skref ekki verið ákveðin.
Þrettán starfa hjá Veitum á Akranesi og hefur fólk fundið fyrir einkennum sveppsins.