Látinn laus í Malaga

Frá Malaga á Spáni.
Frá Malaga á Spáni. Wikipedia/Kiban

Íslenskum karlmanni á fertugsaldri, sem Fréttablaðið greindi frá því í gær að hefði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í Malaga á Spáni, grunaður um alvarlegt ofbeldisbrot gegn þrítugri eiginkonu sinni, hefur verið sleppt úr haldi. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins.
Í Fréttablaðinu í dag kemur fram að konan hafi ekki fallið fram af svölum, eins og greint var frá í gær, heldur á milli hæða innanhúss. Konan sé komin til meðvitundar en sé enn á spítala. Batahorfur eru sagðar betri en talið var í fyrstu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert