Slökktu í alelda bíl í Reykjavík

Slökkviliðið kom og slökkti í bílnum.
Slökkviliðið kom og slökkti í bílnum. mbl.is/Hjörtur

Á ellefta tímanum í morgun fékk slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu tilkynningu um eld í bíl að Blesugróf í Elliðaárdal í Reykjavík. Þegar slökkvilið kom á vettvang var bíllinn alelda og var slökkt í honum. Er bíllinn gjörónýtur eftir brunann.

Eftir að slökkviliðið hafði ráðið niðurlögum eldsins var lögreglunni afhentur vettvangur, en hún fer með rannsókn málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert