Ökumaður bifreiðar var fluttur talsvert slasaður á Landspítalann um hálftólfleytið í gærkvöldi eftir að hafa ekið á ljósastaur á Reykjanesbraut á móts við Rauðhellu.
Slökkviliðsmenn þurftu að beita klippum til að ná ökumanninum út en hann var einn í bílnum.