Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins og lögregla voru kölluð út á tólfta tímanum vegna flutningsbíls sem lenti í vanda í svokallaðri Ullarnesbrekku á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ. Þar er mjög hvasst að sögn vegfaranda.
Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu fór tengivagn, sem flutningabíllinn var með í eftirdragi, á hliðina.
Engan hefur sakað en unnið er að því að hreinsa upp olíu sem lak á veginn. Einhverjar tafir hafa orðið umferð.
Tilkynning um óhappið barst rétt fyrir kl. 12.