Ekið á gangandi vegfaranda

mbl.is/Hjörtur

Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Reykjavegar og Kirkjuteigs um hálftíuleytið í kvöld.

Ekki er talið að vegfarandinn hafi meiðst alvarlega, að sögn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Umferðaróhapp varð á Vesturlandsvegi í Mosfellsbæ um klukkan 19 í kvöld. Eignatjón varð og minni háttar meiðsli á fólki. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert