Elísabet nýr formaður Stúdentaráðs

Elísabet Brynjarsdóttir.
Elísabet Brynjarsdóttir. Ljósmynd/Aðsend

Elísabet Brynjarsdóttir var í kvöld kjörin nýr formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands (SHÍ) með öllum greiddum atkvæðum. Kosningin fór fram á skiptafundi ráðsins.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Elísabet útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands í júní síðastliðnum og hefur starfað sem teymisstjóri hjá heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins síðastliðið ár.

Elísabet er formaður Hugrúnar – geðfræðslufélags háskólanema, sem stofnað var árið 2016 af nemendum í hjúkrunarfræði, læknisfræði og sálfræði við Háskóla Íslands og hefur gegnt hlutverki oddvita Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands, samhliða því.

Röskva vann meirihluta í kosningum til Stúdentaráðs í febrúar síðastliðnum.

Elísabet hefur setið í SHÍ síðastliðin tvö starfsár og lætur nú af störfum sem formaður sviðsráðs heilbrigðisvísindasviðs, sem er eitt af fimm sviðsráðum fræðasviða háskólans sem saman mynda SHÍ.

Í tilkynningunni segist Elísabet spennt að takast á við þau stóru verkefni sem eru fram undan í hagsmunabaráttu stúdenta og nefnir sérstaklega húsnæðismál stúdenta, nýtt lánasjóðsfrumvarp og bætta geðheilbrigðisþjónustu við nemendur Háskóla Íslands.

Á skiptafundi voru einnig kjörnir eftirfarandi fulltrúar á Réttindaskrifstofu SHÍ:

Varaformaður: Sonja Sigríður Jónsdóttir

Hagsmunafulltrúi: Pétur Geir Steinsson

Lánasjóðsfulltrúi: Elísa Björg Grímsdóttir.

Fulltrúar á Réttindaskrifstofu SHÍ.
Fulltrúar á Réttindaskrifstofu SHÍ. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert