Hélt bolta á lofti á miðri akrein

mbl.is/Hjörtur

Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um hálfþrjúleytið í dag um mann sem truflaði umferð á Sæbraut við Kringlumýrarbraut með því að sýna listir sínar með bolta á einni akreininni fyrir miðju.

Með þessu olli maðurinn truflun á umferð og var honum vísað á brott, að því er kemur fram í samantekt lögreglunnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert