Ísafjarðarbær í undanúrslit

Lið Ísafjarðarbæjar er komið áfram í undanúrslit.
Lið Ísafjarðarbæjar er komið áfram í undanúrslit. Mynd/Skjáskot af vef RÚV

Ísafjarðarbær bar sigurorð af Grindavíkurbæ í spurningaþættinum Útsvari í Sjónvarpinu í kvöld með 50 stigum gegn 35.

Þetta var síðasta viðureignin í átta liða úrslitum keppninnar.

Í næstu viku hefjast undanúrslitin þegar Ölfus og Fljótsdalshérað eigast við.

Í hinni viðureigninni viku síðar mætast svo Hafnarfjörður og Ísafjarðarbær.

Lið Grindavíkurbæjar.
Lið Grindavíkurbæjar. Mynd/Skjáskot af vef RÚV
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert