17 ára á 150 km hraða

mbl.is/Júlíus

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði för sautján ára gamals ökumanns í nótt en hann var mældur á 150 km/klst hraða þar sem hámarkshraði er 80 km/klst. Þar sem ökumaðurinn er ekki orðinn átján ára gamall var haft samband við foreldra hans og þeim tilkynnt um atvikið.

Fjórir ökumenn voru stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna á höfuðborgarsvæðinu í nótt. Einn þeirra er þar að auki grunaður um þjófnað og vörslu fíkniefna. Jafnframt var einn tekinn ölvaður undir sá stýri og einn fyrir að hafa ekið án ökuréttinda. Allir voru ökumennirnir látnir lausir að lokinni sýna- og skýrslutöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert