Lokanir á sunnudag vegna götuhjólreiða

Gott er að hafa þessa mynd í huga á sunnudag.
Gott er að hafa þessa mynd í huga á sunnudag. Ljósmynd/Aðsend

Íslandsmeistaramót í götuhjólreiðum verður haldið núna á sunnudaginn og hefst mótið klukkan níu. Vegna mótsins eru lokanir á vegum fyrirhugaðar sem gott er að hafa í huga á sunnudaginn.

Tímabundnar truflanir verða á umferð vegna lokunnar við Þórkötlustaðahverfi að tjaldsvæði í Grindavík. Suðurstandvegur verður lokaður í austurátt frá Grindavík á milli klukkan 9 og 13 en vegurinn verður þó opinn í vestur frá Þorlákshöfn. Mikilvægt er þó að vegvarendur séu upplýstir um mótið og sýni aðgát. Að lokum verður svo Krýsuvíkurvegur verður lokaður frá klukkan 10 til 12:30 og lokað er við Vatnsskarð og Suðurstrandveg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert