Á fjórða tímanum í nótt var ofurölvi maður handtekinn við Austurvöll. Dyraverðir á skemmtistað í bænum höfðu hann þá í tökum, eins og segir í dagbók lögreglunnar, þ.e. héldu honum.
Maðurinn er sagður hafa verið að bera sig en var ekki viðræðuhæfur sökum ölvunar.
Maðurinn var vistaður í fangageymslum lögreglunnar sökum ástands síns.