Rán gefur kost á sér

Rán Reynisdóttir gefur kost á sér í formennsku Neytendasamtakanna.
Rán Reynisdóttir gefur kost á sér í formennsku Neytendasamtakanna. Ljósmynd/Aðsend

Rán Reynisdóttir hársnyrtimeistari hefur gefið kost á sér til formennsku í Neytendasamtökunum.

Hún varð við áskorun hóps fólks sem vill vinna að eflingu samtakanna og hagsmunagæslu almennings, að því er kemur fram í tilkynningu.

Rán er ritari Félags hársnyrtisveina og lauk nýverið námi til kennsluréttinda í iðnnámi. Hún er frumkvöðull í grænni hársnyrtingu á Íslandi, sem gengur út á að meðhöndla hár án efna sem eru skaðleg fyrir neytendur, umhverfið eða starfsfólk. Rán er einstæð móðir fjögurra barna á aldrinum tveggja mánaða til átta ára og hefur reynslu af að reka þungt heimili.

„Ég þekki af eigin raun hversu varnarlausir neytendur eru án öflugrar hagsmunagæslu og öflugrar verndar, sem aðeins næst með samstöðu almennings,“ segir Rán.

„Þegar ég heyrði af hópi fólks með brennandi áhuga fyrir að stórefla Neytendasamtökin og efla samstöðu neytenda gat ég ekki annað en slegist í lið með þeim. Við bætum ekki samfélagið nema með því að taka þátt, bretta upp ermar.“

Ásamt Rán hafa Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna,  Breki Karls­son, for­stöðumaður Stofn­un­ar um fjár­mála­læsi, Guðjón Sig­ur­bjarts­son viðskipta­fræðing­ur, Guðmund­ur Hörður Guðmunds­son, fyrr­ver­andi formaður Land­vernd­ar, og Jakob S. Jóns­son, leiðsögumaður og leik­stjóri, gefið kost á sér í embætti for­manns sam­tak­anna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert