„Ég hef framið stjórnmálalega synd“

Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata.
Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata. mbl.is/Kristinn Magnússon

„Ég hef framið stjórnmálalega synd, ég hef skipt um skoðun,“ sagði Helgi Hrafn Gunnarsson, þingmaður Pírata, á Alþingi í dag. Vísaði hann þar til verðtryggingarinnar sem hann hefði til þessa talið illa nauðsyn og einu leiðina til þess að gera fjárhagslegar langtímaskuldbindingar mögulegar meðfram íslenskri krónu án himinhárra vaxta.

„Þótt ég sé ekki í grundvallaratriðum á móti allri verðtryggingu og telji hana t.d. eðlilega við langtímasparnað hef ég komist að þeirri niðurstöðu, eftir ótal samtöl og spekúleringar, ekki síst við fólk sem er að taka húsnæðislán, að það sé óæskilegt að húsnæðislán séu verðtryggð, sérstaklega svokölluð verðtryggð jafngreiðslulán, sem er yfirþyrmandi vinsælasta húsnæðislánaformið á Íslandi,“ sagði Helgi ennfremur.

Helgi sagði neytendavernd slíkra lána að hans mati fullkomlega ómögulega. „Þau eru einfaldlega of flókin til þess að hægt sé að ætlast til þess af almennum neytendum að þeir átti sig á því hvað þeir séu að gera til framtíðar þegar þeir taka þessi lán. Þau eru ekki bara flókin, þau eru líka stórfurðuleg. Og hætturnar sem neytandinn á að vara sig á eru of esoterískar til að hægt sé að gera þá kröfu á hendur almenns neytanda.“

Helgi sagðist enn fremur hafa sannfærst meira „um ákveðin neikvæð kerfisleg áhrif verðtryggðra húsnæðislána á hagkerfið í heild sinni algerlega óháð sjónarmiðum neytandans. Þó vil ég halda til haga að ég tel rökin sem ég hef fært fyrir nauðsyn þess að bjóða upp á verðtryggð húsnæðislán meðfram íslenskri krónu enn vera góð rök. Mótrökin hafa hins vegar styrkst í mínum huga og er því hinu fyrra jafnvægi sannfæringar minnar raskað.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert