Engar rafrettur til barna undir 18 ára

Notkun á rafrettum er tiltölulega ný hér á landi.
Notkun á rafrettum er tiltölulega ný hér á landi.

Félag atvinnurekenda hefur að gefnu tilefni kannað hjá félagsmönnum sínum, sem flytja inn og selja rafrettur og skyldar vörur, hvort þeir selji eða afhendi börnum undir 18 ára slíkar vörur.

Samkvæmt lögum um rafrettur og áfyllingar fyrir þær, sem taka gildi 1. mars, má hvorki selja né afhenda börnum þessar vörur og skulu kaupendur þeirra sýna fram á aldur sinn með skilríkjum.

„Þessi regla er nú þegar í gildi án undantekninga hjá aðildarfyrirtækjum FA sem flytja inn og selja rafrettur og hefur það í flestum tilvikum átt við frá upphafi starfseminnar. Viðskiptavinir eru beðnir um að sanna aldur sinn með skilríkjum og er aldurstakmarkið jafnframt ítrekað í skilmálum vefverslana. Engin breyting verður því á þessu við gildistöku laganna,“ segir í tilkynningu frá Félagi atvinnurekenda.

Seljendur rafrettna sem eiga aðild að FA eru eftirfarandi:

Djákninn Vape Shop

Fairvape / Silfurský

Grand Vape Shop

Gryfjan Vapeshop

Icevape

Polo Vape Shop / rafrettur.is

Royal Vape Shop

ZOZ Vape Shop

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert