Áfram unnið að samnorrænum innkaupum

Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra.
Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra. mbl.is/Ómar Óskarsson

Ráðherrar heilbrigðismála í Danmörku og Noregi hafa lýst afdráttarlausum vilja til þess að vinna áfram með Íslandi að sameiginlegum innkaupum lyfja og að Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra undirriti einnig yfirlýsingu landanna þar að lútandi fyrir Íslands hönd. Þetta kemur fram á vef velferðarráðuneytisins.

Í sameiginlegu bréfi Ellenar Trane Nørby, heilbrigðisráðherra Danmerkur, og Bent Høie, heilbrigðisráðherra Noregs, til Svandísar Svavarsdóttur heilbrigðisráðherra er þetta áréttað eftir að Svandís óskaði eftir afstöðu ráðherranna til samstarfsins.

Í bréfi ráðherranna segir að þjóðirnar þrjár standi að mörgu leyti frammi fyrir sömu vandamálum og áskorunum á sviði lyfjamála. Þar á meðal sé vandinn við að tryggja nægt framboð nauðsynlegra lyfja og að takast á við vaxandi útgjöld til málaflokksins. Því sé eðlilegt að löndin vinni saman að norrænum lausnum á þessu sviði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert