Baldur: „Winter is coming“

„Winter is coming,“ eða vetur kemur, sagði Baldur Borgþórsson, borgarfulltrúi Miðflokksins, á borgarstjórnarfundi í gær, þegar hann lagði til óháða úttekt á framkvæmdum við Hlemm. Þar vísaði hann til þess að fara þyrfti yfir mörg mál þar sem framúrkeyrsla í framkvæmdum borgarinnar yrði skoðuð.

Í framhaldinu sköpuðust líflegar umræður í borgarstjórn um málefni Hlemms mathallar þar sem Hjálmar Sveinsson, borgarfulltrúi Samfylkingar, ásamt Eyþóri Laxdal Arnalds, borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðismanna, lagði m.a. orð í belg.

Í myndskeiðinu má sjá stutta samantekt á umræðunum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert