Vegagerðin annist veghaldið og göngin

Vegurinn frá Húsavíkurhöfn, um göngin og til Bakka er eingöngu …
Vegurinn frá Húsavíkurhöfn, um göngin og til Bakka er eingöngu notaður til þungaflutninga. mbl.is/Hafþór Hreiðarsson

„Ekki liggur fyrir þjónustuáætlun fyrir nýjan iðnaðarveg en þar verður reynt að uppfylla þarfir iðnaðarins til dæmis hvað varðar vetrarþjónustu,“ segir í kynningu Vegagerðarinnar og Hafnarsjóðs Húsavíkur á framkvæmdum við höfn, jarðgöng og veg að iðnaðarsvæðinu á Bakka sem meðal annars var lögð fyrir Skipulagsstofnun.

Stofnanirnar tvær taka greinilega á sig ábyrgð á rekstrinum þótt ekki komi fram hver eigi að bera kostnaðinn. Það hefur verið mat atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins frá upphafi málsins að Vegagerðin eigi að fara með veghaldið, lögum samkvæmt. Vandséð sé hvaða aðili annar ætti að gera það, að því er fram kemur í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag.

Nú er komið í ljós að enginn opinber aðili treystir sér til að kosta snjómokstur, lýsingu og annan rekstur vegarins. Áætlað er að hann sé um 25 milljónir á ári. Vegagerðin hefur lýst því yfir að hún hætti þeim litla rekstri sem hún hefur með höndum 1. nóvember næstkomandi og sveitarfélagið Norðurþing hyggst ekki taka hann yfir.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert