Snýst um gjaldið en ekki gjaldtökuna

Frá Keflavíkurflugvelli.
Frá Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Fram kemur í yfirlýsingu frá Isavia að fyrirtækið muni una þeirri niðurstöðu áfrýjunarnefndar samkeppnismála að ekki skuli fella úr gildi bráðabirgðaákvörðun Samkeppniseftirlitsins um gjaldtöku á ytri hópbifreiðastæðum við Keflavíkurflugvöll, en samkvæmt ákvörðuninni, sem tekin var 17. júlí í sumar, var Isavia gert að stöðva gjaldtökuna.

Fram kemur í yfirlýsingunni að Samkeppniseftirlitið hafi hins vegar á síðari stigum málsins lýst því yfir að Isavia sé skylt að halda gjaldtöku áfram með breyttu verðlagi. Tekið sé undir það í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar. Þannig sé ljóst að ekki sé deilt um hvort rétt sé að taka gjald fyrir afnot af ytri hópbifreiðastæðum við Keflavíkurflugvöll heldur hvert gjaldið eigi að vera og hvaða forsendur eigi að liggja til grundvallar gjaldinu. Haft er eftir Hlyni Sigurðssyni, framkvæmdastjóra viðskiptasviðs Isavia, að næstu skref séu til skoðunar.

„Þessi niðurstaða áfrýjunarnefndar samkeppnismála er nú til skoðunar hjá Isavia og út frá þeirri athugun verður tekin ákvörðun um næstu skref. Það er markmið félagsins að tryggja jafnan samkeppnisgrundvöll fyrir öll þau fyrirtæki sem bjóða upp á samgöngur til og frá Keflavíkurflugvelli og verður það leiðarljós okkar í þeirri vinnu sem nú er fram undan. Við munum því una þessari niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar og vinna að því að ná sátt á meðan Samkeppniseftirlitið lýkur sinni málsmeðferð vegna gjaldtökunnar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert