Margir kærðir fyrir hraðakstur

Ljósmynd/Lögreglan

Á annan tug ökumanna hafa verið kærðir fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Tveir þessara ökumanna voru að auki grunaðir um ölvunarakstur.

Að sögn lögreglu voru þrír ökumenn teknir úr umferð vegna gruns um fíkniefnaakstur. Einn þeirra ók sviptur ökuréttindum.

Skráningarnúmer voru svo fjarlægð af nokkrum bifreiðum sem voru ótryggðar eða óskoðaðar í umferðinni, að því er lögreglan greinir frá í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert