Ökuníðingi veitt eftirför

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. mbl.is/Eggert

Einn þeirra tæplega 30 ökumanna sem lögreglan á Suðurnesjum hefur kært fyrir of hraðan akstur á undanförnum dögum sinnti ekki stöðvunarmerkjum lögreglubifreiðar á Reykjanesbraut heldur ók rakleiðis áfram í átt að Flugstöð Leifs Eiríkssonar.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.

Lögreglumenn veittu honum eftirför alllanga vegalengd en hann lét ekki segjast fyrr en annarri lögreglubifreið var ekið á móti honum og þá loks stöðvaði hann. Þarna var á ferðinni erlendur ferðamaður sem játaði hraðaksturinn, sem mældist 157 km á klukkustund, og greiddi sekt á staðnum.

Öðrum ökumanni þurfti að veita eftirför þar sem viðkomandi stöðvaði ekki bifreið sína þrátt fyrir notkun forgangsljósa. Hann var grunaður um ölvunarakstur.

Skráningarnúmer voru fjarlægð af nær tíu bifreiðum sem voru óskoðaðar eða ótryggðar. Einnig hafði lögregla afskipti af allmörgum ökumönnum sem virtu ekki stöðvunarskyldu, töluðu í síma undir stýri án handfrjáls búnaðar eða lögðu bifreiðum sínum ólöglega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert