Þróa kerfi til að tryggja velferð barna

Frá undirritun samningsins í Ráðherrabústaðnum.
Frá undirritun samningsins í Ráðherrabústaðnum. Ljósmynd/Aðsend

Félagsmálaráðuneytið, Kópavogsbær, hugbúnaðarfyrirtækið Kara Connect og UNICEF á Íslandi hafa undirritað samstarfssamning um að hefja vinnu við þróun samræmds upplýsingakerfis sem ætlað er að tryggja velferð barna á Íslandi.

Kerfinu er ætlað að vinna úr og greina gögn og tryggja að til staðar séu fullnægjandi upplýsingar um líðan og velferð barna. Tilgangurinn er sá að hægt verði að bregðast við með skilvirkum hætti, að því er segir í tilkynningu.

Samningurinn er liður í viðbrögðum stjórnvalda við tölfræði sem UNICEF kynnti á dögunum og bendir til að 16,4 prósent barna hér á landi verði fyrir líkamlegu eða kynferðislegu ofbeldi fyrir átján ára aldur.

„Tölur UNICEF um hátt hlutfall barna sem verða fyrir ofbeldi hér á landi settu að okkur mikinn óhug. Við þurfum að finna leiðir til að geta brugðist við þar sem þörfin er mest og áður en það er um seinan. Eins þarf að tryggja heildræna nálgun í þjónustu við börn. Þetta verkefni er liður í því,” segir Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, í tilkynningunni.

Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogsbæjar, segir bæinn hafa lagt metnað sinn í að sinna málefnum barna og barnaverndar með sem bestum hætti.

„Samræmt upplýsingakerfi mun vonandi auka gæði þessa starfs, auðvelda snemmtæka íhlutun sem er mikilvæg til að tryggja velferð barna og uppvöxt við bestu skilyrði. Þá mun upplýsingakerfið ýta undir aukið og markvissara samstarf á milli sveitarfélaga sem tryggir börnunum betri þjónustu. Það er heiður fyrir Kópavogsbæ að taka þátt í þróun á kerfinu sem við vonumst sannarlega til að bæti umhverfi og aðbúnað barna frekar,“ segir hann í tilkynningunni.

Samhliða verkefninu verður starfandi stýrihópur skipaður fulltrúum þeirra sem eiga aðild að samningnum og fleiri sem munu fylgja áætlun verkefnisins eftir. Þá verður fulltrúi Persónuverndar hópnum til ráðgjafar er varðar kröfur um meðferð persónuupplýsinga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert