Umfangsmikil kannabisræktun stöðvuð

Í tilkynningu segir að samtals hafi verið um að ræða …
Í tilkynningu segir að samtals hafi verið um að ræða vel á þriðja hundrað kannabisplöntur. AFP

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði umfangsmikla kannabisræktun í umdæminu síðastliðinn föstudag. Um var að ræða kannabisgræðlinga í tjaldi auk stórra plantna sem fundust í þremur herbergjum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum. Þar segir að samtals hafi verið um að ræða vel á þriðja hundrað kannabisplöntur, auk poka með kannabisefnum, sem fundust við húsleitina.

Þá var hald lagt á tugi þúsunda króna, plönturnar og ræktunarbúnað. Húsráðandi var handtekinn og játaði að eiga ræktunina og hafa staðið einn að henni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert