Bíll valt á Elliðavatnsvegi

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfðuborgarsvæðinu segir að ökumaðurinn hafi …
Í tilkynningu frá lögreglunni á höfðuborgarsvæðinu segir að ökumaðurinn hafi kvartað um verk í höfði eftir veltuna. mbl.is/Eggert

Bílvelta varð á Elliðavatnsvegi í hádeginu í dag, en ökumaður sem var þar einn á ferð missti stjórn á bifreiðinni sökum hálku. Bíllinn fór eina veltu og endaði aftur á hjólunum.

Í tilkynningu frá lögreglunni á höfðuborgarsvæðinu segir að ökumaðurinn hafi kvartað um verk í höfði eftir veltuna. Hann var fluttur á bráðamóttöku Landspítalans til aðhlynningar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert