Íslenskur maður er sagður hafa stungið mann í hálsinn fyrir utan bar á Strikinu í miðborg Kaupmannahafnar síðasta laugardagskvöld. Fjallað var um málið á vef Ekstra Bladet það sama kvöld, en DV vakti athygli á málinu fyrst íslenskra miðla í dag.
Maðurinn, sem sjónarvottur segir að hafi verið stórvaxinn og húðflúraður Íslendingur, var handtekinn á hamborgarastaðnum Burger King á Ráðhústorginu, nokkur hundruð metra frá árásarstaðnum. Hnífstungan mun hafa átt sér stað í slagsmálum hins meinta Íslendings við annan mann.
Leif Hansen, varðstjóri hjá lögreglu, segir að maðurinn hafi verið að losa sig við hnífinn í ruslatunnu inni á hamborgarastaðnum er lögregla hafði hendur í hári hans.
Vitni að árásinni eltu manninn frá árásarstaðnum og sögðu lögreglunni símleiðis hvar hann væri staddur. Samkvæmt frétt Ekstra Bladet tóku um það bil 20 lögregluþjónar þátt í handtökunni.
Fórnarlamb hnífstungunnar var ekki í lífshættu eftir árásina, að sögn lögreglu, en var flutt til aðhlynningar á Ríkisspítalann.
Uppfært: Á fréttavef RÚV kemur fram að talið sé að árásarmaðurinn hafi verið Hollendingur en ekki Íslendingur og það haft eftir blaðamanni Ekstra Bladet, sem skrifaður er fyrir fréttinni af málinu.