Árekstur á Vesturlandsvegi

Frá vettvangi í hádeginu.
Frá vettvangi í hádeginu. Ljósmynd/Aðsend

Ein var flutt á slysadeild eftir að tveir bílar rákust saman á Vesturlandsvegi skammt frá gatnamótum Suðurlandsvegar í hádeginu.

Éljagangur, hálka og þungskýjað hefur verið á höfuðborgarsvæðinu í morgun og aðstæður til aksturs frekar slæmar.

Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu voru áverkar konunnar sem var flutt á slysadeild minniháttar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert