Veðrið gengur niður hægt og rólega

Björgunarsveitarmenn að störfum í kvöld.
Björgunarsveitarmenn að störfum í kvöld. mbl.is/Kristinn Magnússon

Veðrið hefur náð hámarki á höfuðborgarsvæðinu og mun það ganga niður hægt og rólega það sem eftir lifir kvölds og í nótt.

Þetta kemur fram á facebooksíðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Í fyrramálið ættu allir í umdæminu að geta farið aftur í skóla og til vinnu eins og ekkert hafi ískorist þótt áfram megi búast við hvassri norðanátt og hita um frostmark.

„Það hefur annars verið í mörg horn að líta hjá lögreglunni og öðrum viðbragðsaðilum í allan dag, en útköllin það sem af er eru í kringum fimmtíu. Kallað hefur verið eftir aðstoð víða á höfuðborgarsvæðinu, en flestar hjálparbeiðnir þó líklega borist úr vesturhluta borgarinnar og frá Seltjarnarnesi,“ segir lögreglan.

„Miðað við veðrið hefði mátti búast við fleiri hjálparbeiðnum, en fólk brást vel við öllum tilmælum viðbragðsaðila og því varð álagið minna en ella og fyrir það viljum við þakka. Þegar leið á daginn var sáralítil umferð og mjög fáir á ferli. Greinilegt er að hugað var vel að lausamunum, ekki síst á byggingarsvæðum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert